|
Könnun
Hvenær eigum við að skíra? uppí bústað sko..
Byrjun mai
1 atkvæði
í enda mai
1 atkvæði
í byrjun júní
1 atkvæði
um 20 júní
0 atkvæði
enda júní
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 3
Fallegar síður í sorg og fl
Allt það besta til að skoða og hanga yfi
|
20.03.2010 00:56:50 / asta33
; "> Eiginkonan var lítið fyrir kynlíf og það var farið að valda eiginmanninum ama. Eitt kvöldið eldaði hann góðan mat keypti rauðvín og gerði allt voða rómantískt þegar konan kom úr vinnu. Hún varð voða glöð. Svo þegar þau voru komin í rúmið lagðist hann þétt að henni og hvíslaði... heldurðu að íþróttaálfurinn megi kíkja í Latabæ?!!!
»
20.03.2010 00:56:11 / asta33
Eiginkonan vaknaði upp um miðja nótt við það að eiginmaðurinn lá dauðadrukkinn ofan á henni og var að reyna að troða magnyl-töflu upp í hana. “Hvað ertu eiginlega að gera maður?” spyr eiginkonan. “Ég.. ?” drafaði í eiginmanninum. “Ég er að reyna að gefa þér magnyl.” “En ég er ekki með hausverk!” svaraði eiginkonan. “Fínt,.. þá skulum við r... !
»
24.02.2010 01:15:32 / asta33
»
09.02.2010 21:26:27 / asta33
Gamall maður var að leita að konunni sinni í IKEA þegar að hann rakst á ungan mann“ég er að leita að konunni minni” sagði gamli maðurinn“ég er líka að leita að minni konu” sagði ungi maðurinn.“Förum bara saman og leitum að þeim”.“Hvernig lítur konan þín út” sagði gamli maðurinn.“Hún er með sítt rautt hár, blá augu,…………stinnan rass og flott brjóst, en konan þín?”“Issssss, skítt með hana, förum og finnum þína”
»
03.02.2010 23:43:47 / asta33
A man was in his front yard mowing grass, when his attractive blonde female neighbor, Judy, came out of her house and went straight to the mailbox. She opened it, then slammed it shut and stormed back into the house.
A little later she came out of her house again, went to the mail box, and again opened it and slammed it shut again. Angrily, back into the house she went.
As the man was getting ready to edge the lawn, she came out again, marched to the mail box, opened it and then slammed it closed harder than ever.
Puzzled by her actions the man asked her, "Is something wrong?"
To which she replied, "There certainly is! My stupid computer keeps saying, YOU'VE GOT MAIL."
»
03.02.2010 23:35:43 / asta33
Tveir íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti. Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum. Þetta eru útlendingar og kunna íslendingarnir lítið í ensku en tekst að spyrja: "Dú jú vant help?" Útlendingarnir svara " no no this is ok" Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú. Útlendingarnir: No no this is ok Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú. Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur. Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir: First ví reip jú - Þen ví ít jú. 
»
03.02.2010 23:33:15 / asta33
Þessi saga gerðist í niðurníddu sveitaþorpi á Englandi - en gæti hafa gerst í kvótalausu krummaskuði á Íslandi. Það kom forríkur Ameríkani í þorpið og bókaði svítuna á sveitahótelinu í viku. Hann borgaði 1000 pund í fyrirframgreiðslu. Hóteleigandinn varð mjög ánægður og borgaði húsgagnasmiðnum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Húsgagnasmiðurinn varð mjög ánægður og borgaði kaupmanninum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Kaupmaðurinn varð mjög ánægður og borgaði píparanum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Píparinn varð mjög feginn og borgaði þorpshórunni 1000 pund sem hann skuldaði henni (hún var búin að hóta að rukka eiginkonuna) Þorpskonan varð mjög ánægð og borgaði hóteleigandum 1000 pund sem hún skuldaði honum fyrir herbergi til að stunda sína vinnu. Svo kom Ameríkaninn niður í lobbíið og sagðist vera hættur við að vera í þorpinu og hóteleigandinn endurgreiddi honum 1000 pund. Allir voru nú skuldlausir og ánægðir. Svo segja menn að framsóknarleiðin sé ekki fær!!! Þetta er eina leiðin!!!
»
03.02.2010 23:30:44 / asta33
Maðurinn i þvottaherberginu ! Ég hef kennt manninum mínum að hjálpa til heima. Og nú stóð hann í þvottaherberginu og var að setja bol i þvottavélina. Hann hrópaði eftir ca. 10 sek. " Hvaða prógramm á ég að nota" " Það fer eftir því hvað stendur á bolnum " svaraði ég" " Liverpool " svaraði hann! Og svo tala þeir um að ljóskur séu vitlausar....
»
03.02.2010 23:26:57 / asta33
Kvenlegt annríkiÞað er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalsíum.
Líka eina appelsínu, út af c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það). Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón af þeim á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar... Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti eitt dagblað, tvo vefmiðla og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?! Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er segja þér frá þessu í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
»
01.02.2010 15:10:01 / asta33
; "> 19.05.2009 Fólk sem að fæddist fyrir 1980 ætti að vera dáið
Fólk sem að fæddist fyrir 1980 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??) Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., og 7. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.
HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?
-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.
-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.
-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.
-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman. Eða á gröfum..í skóflunni
-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika..
-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.
-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.
-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.
-Engir farsímar.....
-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.
-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?
-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.
-Við lékum okkur í nýbyggingum, á stillössum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!
-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.
-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Komum svo bara inn í kvöldið þegar við urðum þreytt.. EKKI neinn tími þar sem krakkar máttu ekki vera úti, foreldrarnir ákváðu það sjálfir..
-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.; ">Löbbuðum upp á fjöll og borðuðum nesti...
-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.
-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.
-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.
-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.
-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, og góð að leysa vandamál.
»
01.02.2010 15:05:51 / asta33
; ">19.05.2009 Fólk sem að fæddist fyrir 1980 ætti að vera dáið
Fólk sem að fæddist fyrir 1980 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??) Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., og 7. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.
HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?
-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.
-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.
-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.
-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.
-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika
-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.
-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.
-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.
-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!
-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.
-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?
-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.
-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!
-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.
-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.
-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.
-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.
-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.
-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.
-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.
-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, og góð að leysa vandamál.
»
23.01.2010 01:09:04 / asta33
.
»
23.01.2010 01:03:56 / asta33
miskilningur.....inn...
»
23.01.2010 00:58:44 / asta33
.
»
11.01.2010 10:31:36 / asta33
http://don.blog.is/blog/don/entry/1003642/#comment2754358
»
Síður: 1 2 3 ... 78
|
|